Hér er hægt að skoða einstakar íbúðir og fá frekari upplýsingar um verð, stærð og skipulag. Ýmist er hægt að kalla fram íbúðir eftir fjölda herbergja eða með því að smella beint með bendli á viðkomandi íbúð.
Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um að velja saman efni og liti á innréttingum, flísum og borðplötum. Rut útskrifaðist frá Istituto Europeo di Design í Róm árið 1993 og hefur unnið bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Innréttingar eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi. Flísar eru frá gæðaframleiðandanum Marazzi. Fjórar mismunandi litasamsetningar á innréttingum, borðplötum, flísum og höldum eru í boði þar sem eldhús-, bað-, svefnherbergis- og forstofuskápar eru í sama lit og áferð þar sem það á við.
Gróðursæll garður prýðir C svæðið og á miðju svæðisins, á milli húsa, er leiksvæði.
Bílastæði í bílageymslu fylgja sumum íbúðum og eru þau staðsett í bílageymslu neðanjarðar, samtals 44 stæði. Bílageymslur eru tengdar stiga- og lyftuhúsum. Einnig eru 27 bílastæði ofanjarðar á lóð fyrir íbúa og gesti. Deilibílaþjónusta verður aðgengileg fyrir íbúa svæðisins.
Við hönnun húsa er áhersla lögð á vandað og fallegt heildaryfirbragð. Húsin eru að stærstum hluta klædd sléttri álklæðningu og eru með mismunandi lit og áferð.
Svalir fylgja öllum íbúðum. Svalir eru með svalalokunum þannig að hægt er að stækka stofurými auk þess sem þær gefa möguleika á að nýta svalir allt árið.
Í öllum íbúðum er vandað ál-/trégluggakerfi og ná gluggar niður í gólf í stofurýmum. Allt gler er háeinangrandi samkvæmt ákvæðum byggingareglugerðar og er glerið með 5 ára framleiðsluábyrgð. Litur á tréhluta glugga er hvítur, álið er í lit sem valinn er af arkitektum húsanna.
Allir léttir milliveggir eru byggðir úr LEMGA léttsteypusteinum frá Steypustöðinni. Steinninn inniheldur ekki lífræn efni og því er ekki hætta á að mygla myndist í þeim.
Inngangshurðir íbúða uppfylla kröfur um hljóðeinangrun. Innihurðir eru með góðri hljóðeinangrun og yfirfelldum hurðakörmum og gerektum. Hurðir eru frá Herholtz og umboðsaðili er BYKO.
Hitalögn er í gólfum til upphitunar. Íbúðir eru loftræstar með vélrænu útsogi.
Gólf í baðherbergi og þvottahúsi eru flísalögð. Kaupandi getur óskað eftir að íbúð sé afhent með parketi gegn greiðslu.
Í eldhúsi er Nobilia eldhúsinnrétting frá trésmiðjunni GKS. Eldhúsinnréttingin er fullbúin með blöndunartækjum og innbyggðum eldhústækjum til að tryggja gott heildarútlit. Eldhús er afhent með spanhelluborði, viftu í innréttingu eða eyjuháfi yfir helluborði þar sem það á við, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél og ofni. Eldhústæki eru þýsk gæðaframleiðsla. Umboðsaðili tækja er trésmiðjan GKS.
Í íbúðum eru hreinlætis- og blöndunartæki frá Grohe og Gustavsberg. Sturtuþil er úr hertu gleri þar sem það á við. Umboðsaðili tækja er BYKO.
Hafðu samband við neðangreinda söluaðila til að fá nánari upplýsingar um íbúðir í Efstaleitinu.
www.eignamidlun.is
eignamidlun@eignamidlun.is
(+354) 588 9090
www.eignamidlun.is • eignamidlun@eignamidlun.is • (+354) 588 9090
Brynjar Þór Sumarliðason
Löggiltur fasteignasali
896 1168
brynjar@eignamidlun.is
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
864 5464
gudlaugur@eignamidlun.is
Þórarinn M. Friðgeirsson
Löggiltur fasteignasali
899 1882
thorarinn@eignamidlun.is
www.fstorg.is
torg@fstorg.is
(+354) 520 9595
www.fstorg.is • torg@fstorg.is • (+354) 520 9595
Hafdís Rafnsdóttir
Löggiltur fasteignasali
820 2222
hafdis@fstorg.is
Sigurður Gunnlaugsson
Löggiltur fasteignasali
898 6106
sigurdur@fstorg.is